05.01.2023

Lágmarks­ið­gjald hækk­aði í 15,5% um ára­mót­in

Þann 1. janúar sl. tóku gildi breytingar á lífeyrissjóðalögunum. Breytingarnar fólu meðal annars í sér að lágmarksiðgjald (skylduiðgjald) í lífeyrissjóð hækkaði úr 12% í 15,5% af launum.

Vert er að benda á að framlag launþega, 4%, helst óbreytt en framlag launþega hækkaði úr 8% í 11,5%. Þeim sem eru sjálfstætt starfandi er nú gert skylt að greiða 15,5% iðgjald í lífeyrissjóð.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hvetur launagreiðendur til að senda skilagreinar með rafrænum hætti, í gegnum launakerfi eða launagreiðendavef Frjálsa. Launagreiðendur greiða skylduiðgjöld mánaðarlega í lífeyrissjóð fyrir alla starfandi á aldrinum 16 til 70 ára. Sjálfstætt starfandi ber að standa skil á sínum lífeyrisiðgjöldum.

Hér má sjá hvernig skylduiðgjald í Frjálsa skiptist í séreign og samtryggingu.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira