22.01.2018

Gjald­þrot United Silicon hef­ur engin frek­ari áhrif á af­komu og ávöxt­un Frjálsa lífeyris­sjóðsins

Stjórn United Silicon hefur óskað eftir að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta en félagið hefur verið í greiðslustöðvun frá því um miðjan ágúst 2017. Gjaldþrotið hefur engin frekari áhrif á afkomu og ávöxtun fjárfestingarleiða Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í september sl. niðurfærði sjóðurinn fjárfestingu Frjálsa 1, Frjálsa 2 og tryggingadeildar í fyrirtækinu í formi hlutafjár og skuldabréfa að fullu. Þess ber að geta að Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur ekki borið neinn kostnað af rekstri United Silicon eftir að félagið fór í greiðslustöðvun og er ekki kröfuhafi þess.

Frjálsa lífeyrissjóðnum þykir miður að áætlanir varðandi fjárfestingu sjóðsins sem tengist félaginu United Silicon skuli ekki hafa gengið eftir en fjárfestingin nam rúmlega hálfu prósenti af heildareignum sjóðsins. Sjóðurinn hefur birt greinagerð um aðkomu sína að fjárfestingunni og fjárhagsleg áhrif hennar. Þrátt fyrir niðurfærsluna var ávöxtun Frjálsa 1 og Frjálsa 2 mjög góð á árinu 2017, eða 6,9% og 6,5%. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins má finna hér.

Eins og sjóðurinn hefur upplýst um í frétt á vefsíðu sinni þá mun sjóðurinn gæta réttar síns og sjóðfélaga eins og kostur er. Í ljósi þeirrar rannsóknar, sem efnt var til eftir að greiðslustöðvun var tilkynnt, óskaði Frjálsi lífeyrissjóðurinn, ásamt öðrum lífeyrissjóðum, eftir óháðu lögfræðiáliti um stöðu sjóðanna gagnvart fjárfestingum tengdum United Silicon. Þar verður skorið úr um til hvaða aðgerða sjóðirnir geti gripið til að verja hagsmuni sjóðfélaga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira