21.11.2023

Frum­varp­ið ávís­un á langvar­andi mála­ferli

Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um slit ÍL-sjóðs felur í sér viðurkenningu á rétti skuldabréfaeigenda til vaxta af íbúðabréfum allt til lokagjalddaga og ábyrgð ríkisins á þeim. Felst í þessu grundvallarbreyting á afstöðu ráðherrans frá því sem verið hefur. Frumvarpið myndi hins vegar vera fjarri því að ná yfirlýstum markmiðum sínum yrði það að lögum. Það myndi að öllum líkindum auka við fjárútgjöld ríkisins, raska jafnvægi á fjármálamarkaði, skapa áratuga óvissu um uppgjör á skuldbindingum ÍL-sjóðs og skaða orðspor ríkisins. Lögin myndu því beinlínis stríða gegn þeim markmiðum sem að er stefnt. Þá virðist sem ekki hafi farið fram viðeigandi greining af hálfu ráðuneytisins eða Seðlabankans á fjármálastöðugleika, peningamagni í umferð og þar með verðbólgu og fleiri slíkum þáttum.

Þetta kemur fram í ítarlegum athugasemdum LOGOS lögmannsþjónustu sem í dag hefur, fyrir hönd tuttugu lífeyrissjóða, skilað í samráðsgátt stjórnvalda vegna frumvarpsins.

Í athugasemdunum segir ennfremur að frumvarpið beri þess skýr merki að íslenska ríkið hyggist sniðganga ábyrgðarskuldbindingar sínar gagnvart skuldabréfaeigendum þrátt fyrir viðurkenningu þeirra á ytra borði. Lagasetningin fæli í sér eignarnám eða bótaskylda takmörkun eignarréttinda skuldabréfaeigenda án þess að uppfyllt væru skilyrði stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu um gæði lagasetningar, almenningsþörf, fullt verð og kröfur um meðalhóf.

Frumvarpið er ávísun á langvarandi ágreiningsmál íslenska ríkisins við lífeyrissjóðina í landinu fyrir dómstólum.

Fjölmargar aðrar athugasemdir eru gerðar við frumvarpsdrögin og eru þær m.a. um efnahagslega þætti unnar í samráði við dr. Hersi Sigurgeirsson, prófessor í fjármálum við Háskóla Íslands og Arctica Finance. Athugasemdir LOGOS fylgja með auk yfirlits helstu punkta.

Samantekt á athugasemdum um frumvarpsdrög

Umsögn um frumvarpsdrög


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira