21.11.2025

Frjálsi og Lífeyris­sjóður bænda hefja sam­einingar­við­ræður

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Ákvörðunin er tekin eftir mat tryggingastærðfræðings sjóðanna á fýsileika sameiningar sem þykir jákvætt fyrir sjóðfélaga beggja sjóða.

Markmiðið sameiningarinnar er að nýta stærðarhagkvæmni til að lækka rekstrarkostnað, efla þjónustu og upplýsingagjöf til sjóðfélaga og launagreiðenda, minnka rekstraráhættu og um leið styrkja eigna- og áhættustýringu sjóðanna.

Verði af sameiningunni yrði sameinaður sjóður með heildareignir upp á um 622 milljarða kr. miðað við stöðu eigna 31. október sl., þar af eignir Frjálsa um 576 milljarðar kr. og eignir Lífeyrissjóðs bænda um 46 milljarðar kr.

Stefnt er að því að viðræðum um sameiningu ljúki fyrir áramót. Náist samkomulag um sameiningu verður boðað til aukaársfundar hjá Lífeyrissjóði bænda og tillaga um sameiningu borin undir sjóðfélaga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira