20.03.2026

Frjálsi lífeyris­sjóðurinn tek­ur þátt í fjármögnun nýs sér­hæfðs hjúkr­unar­rým­is

Undir lok árs 2024 tók Frjálsi lífeyrissjóðurinn, ásamt fjölda annarra lífeyrissjóða, þátt í fjármögnun nýs sérhæfðs hjúkrunarrýmis í gegnum samstarfsvettvang Innviðafélags Íslands í rekstri Arcur. Markmið verkefnisins er meðal annars að mæta miklum flæðisvanda á bráðasjúkrahúsum Landspítala við Hringbraut og í Fossvogi. Nýlega var fjallað um verkefnið í frétt Viðskiptablaðsins.

Um er að ræða fjármögnun á fasteigninni að Urðarhvarfi 16, sem hefur verið breytt og verður nýtt sem sérhæft hjúkrunarrými með 100 plássum. Kaupandi fasteignarinnar er Súlur Reykjavík ehf., félag í eigu Heilsuverndar og fleiri fjárfesta. Fyrir liggur bindandi 20 ára leigusamningur við Ríkiseignir, auk fjármögnunarsamnings við Kviku banka og lífeyrissjóði. Húsið var nýverið afhent Heilsuvernd til rekstrar, um einu og hálfu ári eftir að fjármögnun verkefnisins var tryggð. Heildarfjárhæð verkefnisins nemur 6.500 milljónum króna.

Aðkoma lífeyrissjóðanna var í formi kaupa á verðtryggðu skuldabréfi með fyrsta veðrétti í eigninni. Kvika banki annaðist fjármögnun á framkvæmdartíma á síðari veðréttum. Framkvæmdatíma lauk á undan áætlun og eftir lok hans er eignin að fullu fjármögnuð af lífeyrissjóðum. Auk Frjálsa lífeyrissjóðsins koma Birta lífeyrissjóður, Almenni Lífsverk lífeyrissjóður, Eftirlaunasjóður FÍA, Lífeyrisauki, Lífeyrissjóður bænda og Lífeyrissjóður Rangæinga að verkefninu.

Hér er um að ræða áhugavert og þarft fjárfestingarverkefni sem getur skilað góðri ávöxtun að teknu tilliti til áhættu, auk þess að hafa mjög jákvæð samfélagsleg áhrif.

Þátttaka Frjálsa lífeyrissjóðsins fólst í kaupum á skuldabréfum að nafnvirði 1.320 milljóna króna (um 0,3% af heildareignum sjóðsins). Kaupin fóru fram í áföngum á 16 mánaða tímabili eftir því sem verkefnið þróaðist. Nú hefur lokaúttekt verið samþykkt og fjárfestingin verið kölluð inn að fullu.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn fagnar að ráðist sé í verkefni sem þessi þar sem brýnni innviðatengdri samfélagslegri þörf er mætt með aðkomu langtímafjárfesta líkt og lífeyrissjóða.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira