30.08.2013

Frjálsi lífeyris­sjóðurinn kynnir nýja út­greiðslu­reiknivél og nýja út­gáfu af lífeyris­reiknivél

Ný útgreiðslureiknivél hefur litið dagsins ljós hér á heimasíðu Frjálsa lífeyrissjóðsins. Reiknivélin auðveldar sjóðfélögum að átta sig á útgreiðslumöguleikum sjóðsins, en með henni má reikna útgreiðslur séreignar út frá mismunandi forsendum. Einnig er hægt að skoða útgreiðslur ellilífeyris og þau áhrif sem það hefur að flýta eða fresta töku ellilífeyris ásamt áhrifum eingreiðslna aftur í tímann.

Þá hefur Lífeyrisreiknivél Frjálsa lífeyrissjóðsins verið uppfærð en líkt og áður gerir hún sjóðfélögum kleift að setja upp dæmi um lífeyrissparnað með mismunandi forsendum, svo sem launum, lengd innborgunartímabils eða aldri við töku lífeyris. Út frá þeim forsendum sjá sjóðfélagar vænta inneign í séreignarsparnaði og lífeyrisgreiðslur við starfslok. Með uppfærslunni hefur viðmót Lífeyrisreiknivélarinnar verið einfaldað til muna, núverandi réttindi birtast með sama hætti og á lífeyrisyfirlitum auk þess sem myndræn gröf eru orðin skýrari. Niðurstöður birtast fyrir allar samtryggingarleiðir Frjálsa lífeyrissjóðsins, sem varpar ljósi á sérstöðu hverrar leiðar fyrir sig. Loks eru maka-, barna- og örorkulífeyrisgreiðslur aðgreindar frá öðrum niðurstöðum.

Viðskiptavinir eru hvattir til að prófa sig áfram með reiknivélarnar tvær. Hikið ekki við að hafa samband við Lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444 7000 eða á lifeyristhjonusta@arionbanki.is ef spurningar vakna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira