29.09.2026
Frjálsi innlán: Ný fjárfestingarleið fyrir uppsafnaða séreign
Frjálsi lífeyrissjóðurinn býður nú upp á nýja fjárfestingarleið, Frjálsa innlán, sem fjárfestir í verðtryggðum innlánum. Leiðin er eingöngu í boði fyrir þá sem eiga viðbótarsparnað, frjálsa séreign úr skyldusparnaði og erfðaséreign og vilja flytja séreign sína í heild eða að hluta í Frjálsa innlán.
Leiðin hentar sjóðfélögum sem vilja:
lágmarka sveiflur í ávöxtun séreignarsparnaðar síns. Vextir leiðarinnar breytast með raunvaxtastigi í landinu en breytingar á markaðsvöxtum hafa ekki áhrif á höfuðstól innlána og því eru gengissveiflur mjög litlar.
ávaxta séreign sína í innlánum fjármálastofnana
nýta sér kosti verðtryggingar
Leiðin hentar einkum þeim sem eru að nálgast eftirlaunaaldur eða eru farnir að nýta séreign sína til útgreiðslu svo og þeim sem vilja lágmarka sveiflur í ávöxtun yfir styttri tíma.
Fyrir hvaða séreign er leiðin?
Frjálsi innlán eru í boði fyrir:
viðbótarsparnað
frjálsa séreign úr skyldusparnaði
erfðaséreign
Leiðin er ekki í boði fyrir:
bundna séreign
tilgreinda séreign
framtíðariðgjöld
Flutningur í Frjálsa innlán
Sjóðfélagar geta flutt alla uppsafnaða séreign sína eða ákveðinn hluta hennar úr öðrum fjárfestingarleiðum sjóðsins í Frjálsa innlán. Þannig er hægt að flytja aðeins hluta sparnaðarins í leiðina en halda eftir þeirri inneign sem eftir stendur í öðrum fjárfestingarleiðum.
Einnig er hægt að flytja uppsafnaða séreign frá öðrum vörsluaðilum séreignarsparnaðar í Frjálsa innlán.
Umsóknir
Umsóknareyðublöðin „Beiðni um flutning á uppsafnaðri séreign úr annarri fjárfestingarleið Frjálsa í Frjálsa innlán“ og „Beiðni um flutning á uppsafnaðri séreign frá öðrum vörsluaðila í Frjálsa innlán“ er að finna á umsóknarsíðu Frjálsa undir kaflanum Frjálsi innlán.
Val á fjárfestingaleið
Við val á fjárfestingarleið er mikilvægt að taka mið af sparnaðarmarkmiðum, tímalengd sparnaðar og viðhorfi til áhættu.
Ekki er hægt að segja fyrir um hvaða fjárfestingarleið muni skila hæstu ávöxtun í framtíðinni. Almennt er þó talið að fjárfestingarleiðir sem innihalda hlutabréf skili hærri ávöxtun til lengri tíma en innlán og skuldabréf, en jafnframt fylgja þeim að jafnaði meiri sveiflur í ávöxtun. Verðtryggð innlán bera að jafnaði lægri en stöðugri langtímaávöxtun, þar sem verðmæti þeirra sveiflast ekki í takt við markaði, heldur þróast í samræmi við verðbætur og gildandi vexti hverju sinni.
Sjóðfélagar geta flutt hluta af séreignarsparnaði sínum í Frjálsa innlán kjósi þeir að eiga séreignarsparnað í Frjálsa innlánum og í hlutabréfum og/eða skuldabréfum.
Nánari upplýsingar um fjárfestingarleiðina er að finna í spurt og svarað um Frjálsa innlán.