20.11.2020

Frjálsi hækk­ar há­marks­lán til sjóð­félaga

Stjórn Frjálsa hefur breytt lánareglum sjóðsins þar sem hámarksfjárhæð einstaklinga var hækkuð úr 20 milljónum í 40 milljónir og er nú jöfn hámarksláni fyrir hjón eða sambúðarmaka.

Til að geta fengið lán hjá Frjálsa er skilyrði að eiga séreign eða réttindi í sjóðnum sem myndast hafa með greiðslu skyldusparnaðareða viðbótarsparnaðar.

Jafnframt þurfa umsækjendur að uppfylla annað af eftirfarandi tveimur skilyrðum:

  • Hafa greitt iðgjöld í sjóðinn vegna síðustu sex mánaða.

  • Hafa greitt iðgjöld í sjóðinn vegna samtals 36 mánaða.

Skoða nánari upplýsingar um sjóðfélagalán Frjálsa.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira