12.04.2013

Fram­boðs­frest­ur til stjórnar Frjálsa lífeyris­sjóðsins renn­ur út mið­viku­dag­inn 17. apríl nk.

Frestur til að skila inn framboði til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins rennur út miðvikudaginn 17. apríl nk., en framboð til stjórnar skal tilkynna sjóðnum með sannanlegum hætti með a.m.k. sjö daga fyrirvara.

Á ársfundi sjóðsins, þann 24. apríl nk., verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs.

Vakin er athygli á því að í 31. gr.laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða er að finna ákvæði um hæfisskilyrði stjórnarmanna lífeyrissjóða. Jafnframt hefur FME sett reglur um framkvæmd hæfismats framkvæmdastjóra og stjórnarmanna lífeyrissjóða. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira