24.04.2015

Fram­boð til stjórnar á árs­fundi

Frestur til að skila inn framboði í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir ársfund rann út 22. apríl sl. en á fundinum er kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs.

Tveir skiluðu inn framboði í aðalstjórn og eru því sjálfkjörnir:

Ásdís Eva Hannesdóttir, núverandi stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum
Magnús Pálmi Skúlason, núverandi stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum

Tveir skiluðu inn framboði í varastjórn og eru því sjálfkjörnir:

Selma Svavarsdóttir, núverandi varastjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum
Tryggvi Þór Herbertsson, núverandi varastjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira