20.04.2012
Framboð til stjórnar á ársfundi
Frestur til að skila inn framboðum til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir ársfund rann út 18. apríl sl. Á ársfundinum 25. apríl. nk. verður kosið um tvo aðalmenn til tveggja ára og einn varamann til eins árs.
Eftirtaldir hafa skilað inn framboðum í aðalstjórn:
Ásgeir Thoroddsen. Lögmaður og stjórnarformaður Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Bjarnar Ingimarsson. Lífeyrisþegi og stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum sl. 26 ár.
Ragnar Birgisson. Rekstrarhagfræðingur.
Einn skilaði inn framboði í varastjórn og er viðkomandi því sjálfkjörinn:
Selma Svavarsdóttir. BS í viðskiptafræði og MBA. Sérfræðingur á Þróunar- og markaðssviði Arion banka.