18.04.2013

Fram­boð til stjórnar á árs­fundi

Frestur til að skila inn framboði í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir ársfund rann út 17. apríl sl. Á ársfundinum 24. apríl. nk. verður kosið um tvo aðalmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs.

Eftirtaldir hafa skilað inn framboðum í aðalstjórn:

  • Ásdís Eva Hannesdóttir, MBA. Framkvæmdastjóri Norræna félagsins á Íslandi og núverandi stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.

  • Guðmundur Óskarsson, rekstrarverkfræðingur (M.Sc). Framkvæmdastjóri upplýsingatækni (CIO) hjá Össuri hf.

  • Magnús Pálmi Skúlason, lögfræðingur. Lögmaður hjá Lögskiptum ehf. og núverandi stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.

Eftirtaldir hafa skilað inn framboðum í varastjórn:

  • Anna Sigríður Halldórsdóttir, hagfræðingur. Sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands og núverandi varastjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.

  • Guðmundur Óskarsson, rekstrarverkfræðingur (M.Sc.). Framkvæmdastjóri upplýsingatækni (CIO) hjá Össuri hf.

  • Selma Svavarsdóttir, MBA. Sérfræðingur í markaðsdeild Arion banka en hefur sagt upp störfum og ráðið sig á Starfsmannasvið Landsvirkjunar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira