21.05.2025

Fram­bjóð­endur til stjórnar Frjálsa

Átta framboð bárust í þrjú laus sæti í aðalstjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins og fimm framboð bárust í eitt laust sæti í varastjórn. Í ljósi samsetningar þeirra stjórnarmanna sem sitja áfram í aðalstjórn hlýtur kosningu a.m.k. einn frambjóðandi af hvoru kyni. Í tilfelli varamanna skal kjósa einn frambjóðanda óháð kyni.

Rafræn kosning hefst kl. 17:00 þriðjudaginn 27. maí 2025 og stendur yfir til kl. 17:00 á ársfundardegi þriðjudaginn 3. júní 2025.

Upplýsingar um frambjóðendur í stjórn sem þeir hafa sent sjóðnum má nálgast hér fyrir neðan með því að smella á kynningarbréfið.

Framboð til aðalstjórnar í stafrófsröð:

Framboð til varastjórnar í stafrófsröð:


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira