09.03.2023

Fræðslufund­ur um starfs­lok og út­greiðslu lífeyris­sparnaðar

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, í samstarfi við Arion banka, býður á fræðslufund 20. og 21. mars um útgreiðslur lífeyrissparnaðar þar sem fjallað verður m.a. um útgreiðslureglur, skattalega meðferð og samspil útgreiðslna við greiðslur frá Tryggingastofnun.

Fræðslufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Arion, Borgartúni 19 og hægt er að velja á milli tveggja dagsetninga.

  • Mánudaginn 20. mars kl. 17.30
    - einnig í beinu streymi á Facebook síðu Arion

  • Þriðjudaginn 21. mars kl. 17.30

Boðið verður upp á léttar veitingar en áætlað er að fundirnir taki rúma klukkustund

Skráning á fundinn á arionbanki.is

Allir velkomnir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira