16.02.2023

Fræðslufund­ur Frjálsa

Fræðslufundi Frjálsa verður streymt á Facebook síðu sjóðsins mánudaginn 20. febrúar kl. 10. Fjallað verður um fjárfestingarleiðir, ávöxtun og þjónustu ásamt breytingum á skiptingu skylduiðgjalds í samtryggingu og séreign sem tóku gildi um sl. áramót.

Í panel verða Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins og Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion banka. Umræðum stýrir Eva Rós Birgisdóttir, sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka.

Fundurinn mun standa yfir í rúmlega 30 mínútur og eru sjóðfélagar og aðrir áhugasamir um málefni sjóðsins hvattir til að fylgjast með á Facebook síðu Frjálsa.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira