24.06.2024

Fræðsla um lífeyris­mál - í fyrsta sinn á pólsku

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur alltaf lagt mikið upp úr fjölbreyttri fræðslu fyrir sjóðsfélaga sína. Fræðsluefni sjóðsins hefur fram til þessa fyrst og fremst verið á íslensku en einnig á ensku. Nú finnst okkur ærin ástæða til að gera enn betur og bjóða sömuleiðis upp á fræðslu á pólsku.

Erlendum íbúum á Íslandi, og þar með vinnuafli hérlendis, hefur fjölgað ört á síðustu árum. Samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár Íslands hefur fjöldi erlendra ríkisborgara hér á landi farið upp um 57% síðan í byrjun desember 2019 – eða úr 49.347 í 77.321. Þar af eru Pólverjar langstærsti hópurinn, eða rúm 22.000. Við viljum bregðast við þessari þróun og hjálpa til við að stuðla að því að allt vinnandi fólk hér á landi standi jafnfætis þegar kemur að því að kynna sér réttindi sín og skyldur.

Öllum þeim, sem starfa hér á landi og eru á aldrinum 16-70 ára, ber að greiða í lífeyrissjóð. Því gefur auga leið að erlendir ríkisborgarar, sem ekki hafa náð tökum á íslensku, þurfa að geta kynnt sér málin gaumgæfilega, og helst auðvitað á eigin móðurmáli.

Við riðum á vaðið á dögunum þegar Frjálsi stóð fyrir fræðslu um lífeyrismál á pólsku. Fræðslunni var streymt á Facebook-síðu sjóðsins og er upptaka aðgengileg hér fyrir neðan.

Dominika Ewa, ráðgjafi hjá Arion banka, fór yfir skyldu- og viðbótarlífeyrissparnað og tilgreinda séreign ásamt því að fjalla almennt um Frjálsa, ávöxtun sjóðsins og þjónustu. Auk þess fór Dominika yfir kosti þess að hafa aðgang að lífeyrissparnaði Frjálsa í Arion appinu og geta framkvæmt helstu aðgerðir tengdar sparnaðinum.

Við hvetjum ykkur til þess að benda öllum þeim sem gætu haft gagn af fræðslunni á upptökuna. Eins og er hafa um 1.700 manns horft á myndbandið, sem segir okkur að eftirspurnin er svo sannarlega til staðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira