17.05.2013

Frá­bær við­brögð við fræðslufundaröð Arion banka um út­greiðsl­ur úr lífeyris­sparnaði

Hátt á annað hundrað manns hafa mætt á fræðslufundaröð Arion banka um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði síðastliðinn mánuð. Vegna mikillar þátttöku á fræðslufund sem haldinn var þann 16. apríl síðastliðinn var bætt við tveimur fundum annars vegar í Borgartúni þann 15. maí og hins vegar á Akureyri þann 16. maí.

Fyrirlesarar voru eins og áður þau Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins og Inga Tinna Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Arion banka.

Þau fóru yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi greiðslur úr lífeyrissparnaði s.s. reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar, skattalega meðferð og samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og frá Tryggingastofnun. Einnig var Stöðugreinining lífeyrissparnaðar kynnt, en hún gefur sjóðfélögum yfirsýn yfir heildarstöðu lífeyrissparnaðar og áætlaða stöðu við starfslok. Jafnframt svöruðu þau fjölmörgum spurningum fundargesta.

Fleiri fræðslufundir um lífeyrismál eru fyrirhugaðir á árinu – sjá nánar í viðburðardagatali Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira