31.08.2018

Fjármála­ráðu­neyt­ið stað­festir breyt­ingar á sam­þykkt­um Frjálsa lífeyris­sjóðsins

Fjármálaráðuneytið hefur staðfestbreytingar á samþykktum Frjálsa lífeyrissjóðsins sem samþykktar voru á ársfundi sjóðsins 30. maí sl. Nýjasta útgáfa samþykktaFrjálsa sem tekur gildi frá og með 1. september 2018 er nú aðgengileg á vefsvæði sjóðsins.

Helstu breytingarnar á samþykktum sjóðsins snúa að svokölluðum hálfum ellilífeyri, en það er breyting sem veitir sjóðfélögum aukinn sveigjanleika í töku ellilífeyris. Með tilkomu hálfs ellilífeyris býðst sjóðfélögum að taka hálfan ellilífeyri úr sjóðnum og fresta hinum helmingnum sem hækkar í samræmi við frestunartöflur sjóðsins. Jafnframt gætu sjóðfélagar samhliða töku hálfs ellilífeyris frá lífeyrissjóði mögulega nýtt sambærilegt úrræði frá Tryggingastofnun að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira