23.07.2019

Fjármála­ráðu­neyt­ið stað­festir breyt­ingar á sam­þykkt­um Frjálsa lífeyris­sjóðsins

Fjármálaráðuneytið hefur staðfest breytingar á samþykktum Frjálsa lífeyrissjóðsins sem samþykktar voru á ársfundi sjóðsins 13. maí sl. Nýjasta útgáfa samþykktaFrjálsa sem tekur gildi frá og með 1. ágúst 2019 er nú aðgengileg á vefsvæði sjóðsins hér.

Meðal helstu breytinga voru að samþykkt var að taka úr samþykktum sjóðsins nafn rekstraraðila, Arion banka, en stjórn gefin heimild til að gera rekstrarsamning við fjármálafyrirtæki eða annan hæfan aðila um daglegan rekstur sjóðsins. Jafnframt var samþykkt að hyggist stjórn gera breytingar á rekstrarfyrirkomulagi sjóðsins eða breyta vali á rekstraraðila skuli slík tillaga borin undir sjóðfélaga og öðlast aðeins gildi hljóti tillagan samþykki a.m.k. 2/3 hluta greiddra atkvæða, líkt og gildir um samþykktarbreytingar. Auk þessa var m.a. samþykkt að stjórn hafi heimild til að ákveða að stjórnarkjör og kosning um samþykktabreytingar fari fram með rafrænum hætti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira