23.12.2013

Fjár­festingar­leið­in Frjálsi Áhætta opn­uð á ný

Ákveðið hefur verið að opna fjárfestingarleiðina Frjálsa Áhættu fyrir iðgjöldum nýrra sjóðfélaga og flutningi séreignarsparnaðar til leiðarinnar.

Eftir að gjaldeyrishöftin voru sett á var leiðin lokuð fyrir nýjum sjóðfélögum og flutningi séreignarsparnaðar til að hægja á lækkun á hlutfalli erlendra eigna. Sjóðfélögum, sem höfðu valið leiðina fyrir lokun hennar, hefur verið heimilt að greiða áfram í leiðina og hefur það leitt til þess að hlutfall erlendra eigna hefur lækkað smám saman.

Í dag er hlutfall erlendra eigna leiðarinnar orðið það lágt, eða undir 10%, að ekki er ástæða til að hafa leiðina áfram lokaða. Heildarvægi innlendra og erlendra hlutabréfa er um 30% og stendur því leiðin áfram undir nafni sínu Frjálsi Áhætta.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira