15.01.2025

Breyt­ingar á vöxt­um verð­tryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,49% í 4,67% og tekur vaxtabreytingin gildi í dag 15. janúar. Breytingin tekur gildi 15. febrúar fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með eins mánaðar fyrirvara.

Eftir vaxtahækkunina verða vextir lána Frjálsa eftirfarandi:

  • Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum: 4,67%

  • Verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann: 4,41%

  • Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn: 8,76%

Nánari upplýsingar um lán sjóðsins.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira