08.07.2026
Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána
Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa lækka úr 4,30% í 4,05% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. ágúst nk. fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með a.m.k. 30 daga fyrirvara.
Eftir vaxtabreytinguna verða vextir lána Frjálsa eftirfarandi:
Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum: 4,05% (ekki í boði að svo stöddu)
Verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann: 4,59%
Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn: 8,74%
Nánari upplýsingar um lán sjóðsins