07.09.2023

Breyt­ingar á persónu­verndar­stefnu Frjálsa

Frjálsa lífeyrissjóðnum er umhugað um persónuvernd og réttindi sjóðfélaga. Persónuvernd sjóðfélaga skiptir sjóðinn miklu máli og er lögð sérstök áhersla á að persónuupplýsingar séu unnar með lögmætum, sanngjörnum og gagnsæjum hætti.

Frjálsi útvistar daglegum rekstri til Arion banka. Í því felst að öll vinnsla persónuupplýsinga fer fram hjá Arion banka. Í því skyni að tryggja persónuvernd og réttindi sjóðfélaga með sem bestum hætti hefur stjórn sjóðsins tekið upp persónuverndaryfirlýsingu bankans.

Þessar breytingar ættu ekki að hafa áhrif á upplifun sjóðfélaga af þjónustu sjóðsins en þeir eru þó hvattir til að kynna sér persónuverndaryfirlýsingu bankans. Þar kemur m.a. fram hvaða persónuupplýsingar bankinn vinnur f.h. Frjálsa lífeyrissjóðsins, hvernig slík vinnsla fer fram og hvers vegna.

Frekari upplýsingar um persónuvernd og persónuverndaryfirlýsinguna er að finna hér.

Engra aðgerða er þörf af hálfu sjóðfélaga en spurningar og/eða athugasemdir skal senda á persónuverndarfulltrúa bankans á netfangið personuvernd@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira