24.02.2025
Breyting á vöxtum sjóðfélagalána
Vextir óverðtryggðra lána, sem eru fastir til þriggja ára í senn, lækka úr 8,76% í 8,41% og tekur vaxtabreytingin gildi miðvikudaginn 26. febrúar nk.
Eftir vaxtabreytinguna verða vextir lána Frjálsa eftirfarandi:
Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum: 4,67%
Verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann: 4,41%
Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn: 8,41%