03.09.2013

Breyt­ing á stjórn Frjálsa lífeyris­sjóðsins

Bjarnar Ingimarsson, sem endurkjörinn var í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins á ársfundi 2012 til tveggja ára, sagði sig úr stjórn sjóðsins á stjórnarfundi 29. ágúst sl. Bjarnar er 78 ára gamall og hefur setið samfellt í stjórn sjóðsins frá árinu 1986 en þá var fyrst kosið í stjórn sjóðsins. Stjórn og framkvæmdastjóri sjóðsins þakka Bjarnari fyrir störf hans í þágu sjóðsins sl. 27 ár en hann hefur ætið sinnt stjórnarstörfum af alúð og kostgæfni. Bjarnar mun sitja áfram í endurskoðunarnefnd sjóðsins en hún er að jafnaði kosin á fyrsta stjórnarfundi eftir ársfund.

Sæti Bjarnars í stjórn sjóðsins tekur Anna Sigríður Halldórsdóttir en hún var kosin varamaður í stjórn sjóðsins á síðasta ársfundi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira