08.01.2021

Breyt­ing á lána­af­greiðslu Frjálsa

Arion banki hefur flutt nær alla starfsemi sem áður var í útibúinu í Borgartúni 18 yfir í höfuðstöðvar bankans í Borgartúni 19. Þar verður tekið á móti þeim sem eiga bókaða tíma vegna lánamála Frjálsa. Nánar um flutning á starfsemi bankans hér.

Aðrar þjónustuleiðir

Frjálsi leggur áfram áherslu á rafrænar þjónustuleiðir og fyrirframbókaða fundi og sem fyrr eru allir hvattir til að skrá erindi sín hér hvort sem það er vegna lánamála eða lífeyrismála. Haft verður samband eins fljótt og kostur er. Ef ekki næst að leysa erindi í gegnum síma eða rafrænar leiðir þá verður bókaður fundur á þeim tíma sem hentar.

  • Hjá lífeyrisráðgjafa í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 – fyrir útgreiðsluráðgjöf, almenna lífeyrisþjónustu og launagreiðendaþjónustu.

  • Hjá fjármálaráðgjafa í útibúum Arion banka Bíldshöfða 20 og Smáratorgi 3 eða í höfuðstöðvum Arion banka Borgartúni 19 – fyrir lánamál.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira