26.07.2019

Ávöxt­un Frjálsa lífeyris­sjóðsins frá ára­mótum

Frjálsi lífeyrissjóðurinn býður upp á fjórar misáhættumiklar fjárfestingarleiðir sem gera sjóðfélögum fært að ráðstafa meirihluta skyldusparnaðarásamt öllum viðbótarsparnaðií þá leið er hæfir viðhorfi og þoli viðkomandi gagnvart áhættu hverju sinni. Einnig er í boði að velja Ævilínu, en þá færist viðkomandi sjálfkrafa á milli fjárfestingarleiða eftir aldri. Sjóðfélagar geta jafnframt breytt um fjárfestingarleið hvenær sem er á Mínum síðum Frjálsa.

Nafnávöxtun fjárfestingarleiða Frjálsa fyrstu sex mánuði ársins var á bilinu 4,6% - 14,5%.

Frjálsi Áhætta sem er áhættumesta fjárfestingarleið sjóðsins skilaði 14,5% nafnávöxtun sem samsvarar 12,8% raunávöxtun á tímabilinu. Í Frjálsa Áhættu er hlutfall hlutabréfa og hlutabréfatengdra afurða hæst og má því búast við að langtímaávöxtun verði hærri en í öðrum leiðum en að sami skapi eru meiri líkur á sveiflum í ávöxtun.

Frjálsi 1 sem er stærsta, elsta og fjölmennasta leið sjóðsins skilaði 13,6% nafnávöxtun sem samsvarar 11,9% raunávöxtun á sama tíma.

Frjálsi 2 skilaði 9,0% nafnávöxtun á tímabilinu sem samsvarar 7,3% raunávöxtun. Í Frjálsa 2 er hlutfall skuldabréfa hátt og má því búast við að langtímaávöxtun verði jafnari en í Frjálsa 1.

Frjálsi 3 er áhættuminnsta fjárfestingarleið sjóðsins en stærsti hluti safnsins er í stuttum ríkistryggðum skuldabréfum og innlánum. Frjálsi 3 skilaði 4,6% nafnávöxtun sem samsvarar 3,0% raunávöxtun frá áramótum.

Nánar um ávöxtun Frjálsa       Skoða fjárfestingarstefnu Frjálsa

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira