14.09.2018

Ávöxt­un Frjálsa kem­ur vel út mið­að við samanburðar­sjóði skv. skýrslu Ana­lytica

Frjálsi lífeyrissjóðurinn óskaði eftir því að ráðgjafarfyrirtækið Analytica gerði skýrslu um samanburð á ávöxtun og kostnaði sjóðsins í samanburði við nokkra aðra lífeyrissjóði. Tilefnið er samanburður Stefáns Sveinbjörnssonar, sjóðfélaga og framkvæmdastjóra Verslunarmannafélags Reykjavíkur og nefndarmanns í endurskoðunarnefnd annars lífeyrissjóðs, sem hann rakti í erindi sínu á ársfundi Frjálsa lífeyrissjóðsins í maí sl. Efni úr kynningu Stefánsbirtist á vef Eyjunnar/DV eftir að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður stjórnar Verslunarmannafélags Reykjavíkur, fjallaði um hana. Hér er að finna viðbrögð sjóðsins við þeirri umfjöllun.

Helstu niðurstöður Analytica eru þær að samanburðurinn gefi beinlínis ranga og misvísandi mynd af ávöxtun samtryggingardeilda sjóðanna þar sem ekki er tekið tillit til mismunandi uppgjörsaðferða sjóðanna. Þannig er ekki tekið tillit til þess að flestir lífeyrissjóðir gera hluta skuldabréfaeignar sinnar upp á kaupkröfu á meðan aðrir meta skuldabréfasafnið á markaðsvirði. Eftir að leiðrétt hefur verið fyrir markaðsávöxtun skuldabréfa sem gerð eru upp á kaupkröfu innan samtryggingardeilda er 3ja ára meðalávöxtun samtryggingardeildar Frjálsa eftir allan kostnað best á meðal samanburðarsjóðanna, andstætt því sem kom fram í kynningu Stefáns. Á sama tímabili er rekstrar- og fjárfestingarkostnaður Frjálsa hæstur. Stefna Frjálsa er að fjárfesta í sjóðum í virkri stýringu sem oft eru kostnaðarsamari og auka óbeinan fjárfestingarkostnað sjóðsins en hafa aftur á móti heilt yfir skilað sjóðnum góðri ávöxtun. Langtímaávöxtun tryggingadeildar Frjálsa og sjóðsins í heild er jafnframt best á meðal sjóða þar sem upplýsingar liggja fyrir um markaðsvirði skuldabréfa þeirra.

Þá gerir Analytica athugasemd við að borinn er saman kostnaður við rekstur hvers sjóðs í heild í samhengi við ávöxtun samtryggingardeilda sjóðanna. Réttast sé að nota ávöxtun lífeyrissjóðanna í heild þegar gerður er samanburður á rekstrar- og fjárfestingarkostnaði sjóðanna í heild.  Af heildareignum Frjálsa nemur samtryggingardeildin aðeins um 30% og gefur því augaleið að samanburðurinn er villandi.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn fagnar allri umræðu og samanburði á ávöxtun og kostnaði lífeyrissjóða. Slík umræða veitir stjórn og starfsfólki sjóðsins, sem og öðrum lífeyrissjóðum, aðhald og getur verið upplýsandi og gagnleg fyrir sjóðfélaga. Það er hins vegar mikilvægt að samanburðurinn sé réttur, sanngjarn og byggður á samanburðarhæfum upplýsingum. Slíku var ekki að dreifa í umræddri kynningu og telur sjóðurinn sér rétt og skylt að koma réttum upplýsingum á framfæri til sjóðfélaga.

Skýrsla Analytica er aðgengileg hér fyrir neðan.

Skýrsla Analytica um rekstrar- og fjárfestingarkostnað og hreina ávöxtun lífeyrissjóða

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira