25.01.2024

Ávöxt­un Frjálsa ár­ið 2023

Undanfarin ár á fjármálamörkuðum hafa verið afar sveiflukennd. Árið 2021 var sem dæmi með þeim bestu frá upphafi sjóðsins en árið 2022 markar eitt mest krefjandi ár á fjármálamörkuðum frá fyrri hluta síðustu aldar. Árið 2023 einkenndist af töluverðum markaðssveiflum, bæði á erlendum og innlendum mörkuðum. Innlend hlutabréf lækkuðu þó töluvert meira en erlend hlutabréf og skuldabréf. Þær fjárfestingarleiðir sem vega þyngst í erlendum hlutabréfum skiluðu hæstu ávöxtun á árinu en nafnávöxtun fjárfestingarleiða var á bilinu 5,9% til 8,4% og raunávöxtun -2,0% til 0,4% þar sem verðbólga hefur verið þrálát. Ávöxtun tryggingadeildar mun liggja fyrir við útgáfu ársreiknings sjóðsins.

Markaðsaðstæður síðustu ára undirstrika mikilvægi þess að vera með dreift eignasafn til þess að standast sveiflur á mörkuðum. Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggur upp úr því að fjárfesta í ólíkum eignaflokkum, atvinnugreinum og landsvæðum til þess að dreifa áhættu sem mest.

Þróun markaða

Á síðasta ári skildi nokkuð á milli ávöxtunar innlendra og erlendra hlutabréfamarkaða. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands (OMXI15CAP) lækkaði um -1,5% en til samanburðar hækkaði heimsvísitala hlutabréfa (MWXO) um 21,8% í bandaríkjadal en um 16,6% á sama tímabili í íslenskum krónum. Íslenski markaðurinn fylgdi þeim erlenda framan af ári en á vormánuðum fóru leiðir að skilja. Það orsakaðist m.a. af neikvæðum fréttum af stærstu félögunum á íslenska hlutabréfamarkaðnum en ávöxtun á erlendum hlutabréfamörkuðum var einkum drifin áfram af fáum stórum tæknifélögum í kjölfar væntinga um vöxt og tækniþróun með aukinni notkun gervigreindar.

Seðlabanki Íslands hefur hækkað vexti frá vormánuðum 2021 en nú virðist sjá fyrir endann á hækkunarferlinu. Stýrivextir standa nú í 9,25% eftir að hafa hækkað um 3,25 prósentustig á árinu 2023. Nafnávöxtun verðtryggðra ríkisskuldabréfa var á bilinu 1,6% til 6,3% á árinu en óverðtryggðra 3,6% til 6%. Hækkun stýrivaxta á árinu sem og aðrir óvissuþættir í efnahagsmálum leiddu til þess að ávöxtunarkrafa skuldabréfa hækkaði og þar með lækkaði virði þeirra.

Horft fram á við, geta tækifæri myndast á innlendum hlutabréfamarkaði eftir miklar lækkanir líkt og sáust á síðasta ári en þá býðst fjárfestum að kaupa hlutabréf á hagstæðari verðkennitölum. Hið sama má segja um skuldabréfamarkaðinn þar sem fjárfestum býðst nú að kaupa skuldabréf á mun hærri ávöxtunarkröfu en stóð til boða í lágvaxtaumhverfi síðustu ára. Horfur til lengri tíma eru nokkuð góðar með hjaðnandi verðbólgu og með auknum líkum á að vaxtahækkunarferli Seðlabanka, bæði hér heima og úti, sé lokið. Þó er vert að nefna að ríkjandi óvissa vegna eldgoss og jarðhræringa á Reykjanesi síðustu daga getur vissulega haft mikil áhrif á innlenda markaði.

Langtímaávöxtun

Hér fyrir neðan má sjá ávöxtun á ársgrundvelli til 5 ára og 10 ára m.v. 31.12.2023. Þegar horft er á lengri tíma sparnað eins og lífeyrissparnað er mikilvægt að minna sig á að ávöxtun til lengri tíma er það sem mestu máli skiptir og ekki er óeðlilegt að það verði nokkrar sveiflur á milli ára. Þá eru sveiflur í áhættumeiri fjárfestingarleiðunum alla jafnan meiri á milli ára en á móti koma væntingar um hærri langtímaávöxtun.

Áhættudreifing leiðarljós í fjárfestingum

Fjárfestingarleiðirnar hafa mismunandi fjárfestingarstefnu og fela í sér mismunandi áhættu. Við val á leið er rétt að hafa í huga væntanlegan útgreiðslualdur og viðhorf til áhættu. Fjárfest er í mismunandi eignaflokkum, eignum, landssvæðum og gjaldmiðlum til að ná fram áhættudreifingu. Markmiðið er að dreifa áhættunni á þann veg að þótt lækkun verði á ákveðnum eignaflokki, á ákveðinni tegund eigna eða innan ákveðins landsvæðis eru líkur á að hún vinnist að hluta upp í hækkun af öðrum og dragi þannig úr sveiflum á ávöxtun á viðkomandi fjárfestingarleið í heild.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira