29.05.2018

Árs­fund­ur Frjálsa lífeyris­sjóðsins verður hald­inn 30. maí nk.

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 30. maí, kl. 17:15, í höfuðstöðvum Arion banka að Borgartúni 19.

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar

  2. Kynning ársreiknings

  3. Tryggingafræðileg athugun

  4. Fjárfestingarstefna sjóðsins

  5. Kosning stjórnar og varamanna

  6. Kjör endurskoðanda

  7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins

  8. Laun stjórnarmanna

  9. Önnur mál

Stjórn sjóðsins skal skipuð sjö sjóðfélögum, fjórum kosnum af sjóðfélögum á ársfundi og þremur skipuðum af Arion banka. Tveir aðalmenn skulu kosnir á hverjum ársfundi sjóðsins til tveggja ára í senn, en nú er skipunartími tveggja stjórnarmanna að renna út, annars vegar Ásgeirs Thoroddsen, formanns stjórnar, og hins vegar Önnu Sigríðar Halldórsdóttur og verður því kosið um þau tvö sæti í stjórn á ársfundinum. Upplýsingar um stjórnarmenn Frjálsa lífeyrissjóðsins má finna hér. Þá skulu tveir varamenn kosnir á ársfundi sjóðfélaga til eins árs í senn og Arion banki skipar tvo varamenn. Á ársfundinum verður því einnig kosið um tvo varamenn í stjórn til eins árs.

Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins hafa verið birtar hérá síðunni, auk þess sem að kynningar á frambjóðendum til stjórnar hafa verið birtar hérá síðunni.

Sjóðfélagar þurfa að framvísa skilríkjum með mynd við skráningu inn á fundinn.

Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira