07.11.2022

Áhrif mál­efna ÍL-­sjóðs á eignir Frjálsa lífeyris­sjóðsins

Íbúðalánasjóður hóf útgáfu á skuldabréfum með ríkisábyrgð (HFF) árið 2004. Bréfin eru að mestu í eigu lífeyrissjóða og verðbréfasjóða, m.a. Frjálsa lífeyrissjóðsins.

Vegna slæmrar stöðu Íbúðalánasjóðs, sem nú heitir ÍL-sjóður, gaf fjármálaráðherra út yfirlýsingu þann 20. október sl. þess efnis að hann vilji ná samkomulagi við eigendur bréfanna um uppgjör og slit sjóðsins. Gangi ekki að semja verði sjóðnum slitið með lagasetningu og eignum hans ráðstafað til að gera upp skuldir. Sama dag var bókfært virði HFF bréfa í eigu Frjálsa 41,7 milljarðar kr. eða um 10,7% af heildareignum sjóðsins.

Daginn eftir yfirlýsingu fjármálaráðherra voru bréfin sett á athugunarlista í Kauphöll Íslands vegna óvissu sem var uppi um verðmyndun þeirra. Í kjölfarið hefur markaðsvirði þeirra lækkað umtalsvert, en þó mismikið eftir því hvenær lokagjalddagi bréfanna er:

  • HFF bréf með lokagjalddaga 2024 hafa lækkað um 1,3%

  • HFF bréf með lokagjalddaga 2034 hafa lækkað um 8,6%

  • HFF bréf með lokagjalddaga 2044 hafa lækkað um 15,8%

Markaðsvirðið miðast við að ÍL-sjóði verði slitið og að HFF bréfin verði greidd upp m.v. svokallað uppgreiðsluvirði, þ.e. höfuðstól, áfallna vexti og verðbætur.

Hér má sjá þau áhrif sem lækkun HFF bréfa hefur haft á ávöxtun Frjálsa eftir deildum:

Áhrif lækkunar HFF bréfa á ávöxtun

Frjálsi áhætta

-1,1%

Frjálsi 1

-1,2%

Frjálsi 2

-1,5%

Frjálsi 3

-0,9%

Frjálsi tryggingadeild

-0,4%

Lækkunin hafði áhrif á stöðu séreignar sjóðfélaga en áhrif á tryggingafræðilega stöðu tryggingadeildar eru enn sem komið er engin því bréfin eru núvirt m.v. 3,5% ávöxtunarkröfu í tryggingafræðilegri athugun. Það þýðir að koma þarf til uppgreiðslu bréfanna til að framkalla áhrif á tryggingafræðilega stöðu.

Rétt er að taka fram að Frjálsi lífeyrissjóðurinn viðurkennir ekki lögmæti þeirra aðgerða sem fjármálaráðherra hefur boðað um slit og uppgjör á skuldum ÍL-sjóðs. Frjálsi telur lagalega stöðu lífeyrissjóðsins sterka og mun gæta hagsmuna sinna sjóðfélaga af fullum þunga í þessu máli. Heildaráhrif á stöðu Frjálsa munu því ekki koma í ljós fyrr en málið hefur verið leitt til lykta.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira