01.04.2022

Áfram­hald á veg­ferð ábyrgra fjár­festinga hjá Frjálsa lífeyris­sjóðn­um

Málefni ábyrgra fjárfestinga hafa verið Frjálsa lífeyrissjóðnum hugleikin í starfseminni síðustu ár. Stjórn sjóðsins mótaði stefnu tengt málefninu fyrst árið 2018 og frá þeim tíma hafa mörg metnaðarfull skref verið stigin.

Upplýsingar um ábyrgar fjárfestingar hafa verið uppfærðar ávef Frjálsa þar sem farið er yfir aðalmarkmið að baki hugmyndafræði og verklagi ábyrgra fjárfestinga hjá Frjálsa. Einnig er birt í fyrsta skipti yfirlit yfir kolefnisspor innlendra skráðra hlutabréfa og grænar fjárfestingar í eignasafni Frjálsa.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hvetur sjóðfélaga eindregið til þess að kynna sér málefni ábyrgra fjárfestinga, en fjárfestar horfa í auknum mæli til umhverfisþátta, félagslegra þátta og stjórnarhátta þegar fjárfestingarkostir eru greindir og metnir.

Hér má sjá uppfærða vefsíðu Frjálsa lífeyrissjóðsins um ábyrgar fjárfestingar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira