20.10.2020

Ábyrg­ar fjár­festingar hluti af framúrsk­ar­andi UFS ein­kunn

Aðalmarkmið að baki hugmyndafræði ábyrgra fjárfestinga er að stuðla að jákvæðum áhrifum á umhverfið, félagslega þætti og stjórnarhætti, (UFS e. ESG) draga úr áhættu og skila sjálfbærri langtímaávöxtun. Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur ákveðið að horfa til þessara þátta í starfsemi sinni og sett var stefna í þeim efnum árið 2018 sem síðan þá hefur verið framfylgt með virkum hætti.

Eignastýring Arion banka, sem annast eignastýringu sjóðsins, hefur þróað aðferðafræði og innleitt verklag ábyrgra fjárfestinga í starfshætti sína fyrir hönd sjóðsins þar sem horft er til þriggja grunnþátta sjálfbærni; umhverfis- og félagslegra þátta og stjórnarhátta. Samhliða því er sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð (e. UN Global Compact) hafður til hliðsjónar við eignastýringu Frjálsa. Þessi sáttmáli tengist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun með einum eða öðrum hætti og með því má segja að í starfsemi sjóðsins sé unnið í átt að markmiðunum.

Ánægjulegt er að greina frá því að m.a. fyrir þessa vinnu eignastýringar fyrir hönd Frjálsa lífeyrissjóðins gaf Reitun nýverið Arion banka, í áhættumati sínu á UFS þáttum framúrskarandi einkunn. Einnig er nefnt að áhrifavald hafi verið nýtt með jákvæðum þætti með því að eignastýring hafi auki veitt fyrirtækjum aðstoð og eftirfylgni við að standa betur að málaflokknum.

Nánar um einkunn Reita

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir

Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.

Lesa meira
16. október 2026

Breytingar á vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Lesa meira
15. október 2026

Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026.

Lesa meira