Frétt
Skattfrjáls ráðstöfun - breytingar 1. október
01. október 2026Skattfrjáls úrræði hafa verið í boði frá árinu 2014 til að auðvelda einstaklingum íbúðakaup. Breytingar verða þann 1. október þegar ný lög nr. 71/2026 um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána, taka gildi. Eiga breytingarnar einkum við um almenna úrræðið en samhliða voru gerðar breytingar á úrræði fyrstu íbúðar. Miða breytingarnar einkum að því að samræma úrræðin tvö og einfalda framkvæmd.
Helstu breytingar á almenna úrræðinu eru þær að heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar viðbótarlífeyrissparnaðar verður varanleg og mun ná til alls tíu ára ráðstöfunartímabils þ.e. 120 mánaða samanlagt. Þá munu hámarksfjárhæðir taka breytingum í samræmi við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs, fyrst í janúar 2027. Hámarksfjárhæð verður eftirleiðis eingöngu bundin við einstaklinga, engin tenging verður milli hjóna/samskattaðra lengur. Ekki verður lengur hægt að sækja um húsnæðissparnað í almenna úrræðinu, eingöngu í úrræði fyrstu íbúðar en bæði úrræðin heimila áfram ráðstöfun framtíðariðgjalda inn á lán. Gert hefur verið að skilyrði að íbúðarhúsnæðið sem lánið er með veð í, sé lögheimili umsækjanda og að hann eigi a.m.k. 30% eignarhlut í því. Búseturétthafar geta ekki lengur nýtt almenna úrræðið. Umsóknarform verður framvegis aðgengilegt á skattur.is. og samkvæmt upplýsingum frá Skattinum er stefnt að því að opna fyrir umsóknir eins fljótt og auðið er. Umsókn gildir um iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst. Frá þessari reglu er þó ein undantekning þ.e. umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 gilda frá janúar 2026.
Helstu breytingar á úrræði fyrstu íbúðar eru þær að heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar mun ná til alls tíu ára ráðstöfunartímabils þ.e. 120 mánaða samanlagt í stað samfellds tímabils áður. Þá munu hámarksfjárhæðir taka breytingum í samræmi við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs, fyrst í janúar 2027.
Samspil við fyrri nýtingu úrræða: sá sem hefur þegar fullnýtt úrræði fyrstu íbúðar og/eða almenna úrræðið í tíu ár eða lengur getur ekki nýtt sér heimild samkvæmt hinum nýju lögum. Horft er á tímabil þ.e. ár en ekki fjárhæðir þegar nýting er metin.
Allar helstu upplýsingar um úrræðin tvö hafa verið uppfærðar hér á vef Frjálsa og er sérstök athygli vakin á eftirfarandi efst í spurt og svarað:
- NÝTT! Breytingar sem taka gildi þann 1. október 2026
- NÝTT! Hvaða skattfrjálsu úrræði eru í boði og hvað sérreglur gilda um hvort úrræði?
Jafnframt má nálgast allar helstu upplýsingar um skattfrjálsu úrræðin tvö á www.skatturinn.is.