Frétt
Sameining Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda samþykkt
23. júní 2026Sjóðfélagar Lífeyrissjóðs bænda (LSB) samþykktu einróma tillögu um sameiningu sjóðsins við Frjálsa lífeyrissjóðinn á ársfundi LSB sem haldinn var 19. júní sl.
Sameiningin felur í sér að Frjálsi lífeyrissjóðurinn mun taka yfir öll réttindi og skyldur gagnvart sjóðfélögum LSB og verða sjóðfélagar hans hluti af Frjálsa en fyrst um sinn verður haldið utan um eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB í sér tryggingadeild innan Frjálsa.
Markmiðið sameiningarinnar er að nýta stærðarhagkvæmni til að lækka rekstrarkostnað, efla þjónustu og upplýsingagjöf til sjóðfélaga og launagreiðenda, minnka rekstraráhættu og um leið styrkja eigna- og áhættustýringu sjóðanna.
Sameiningin er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna. Sjóðfélagar þurfa almennt ekkert að aðhafast vegna sameiningarinnar en verða upplýstir um áframhaldandi framgang hennar eftir því sem fyrirvörum sameiningar hefur verið aflétt.
Nánari upplýsingar um sameininguna, þar á meðal samþykktabreytingar og glærur frá kynningarfundi fyrir sjóðfélaga LSB, eru aðgengilegar hér.