Frétt
Kynningarfundir um fyrirhugaða sameiningu Lífeyrissjóðs bænda og Frjálsa lífeyrissjóðsins
11. júní 2026Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga Lífeyrissjóðs bænda um fyrirhugaða sameiningu við Frjálsa lífeyrissjóðinn voru haldnir á Hellu fimmtudaginn 4. júní og á Akureyri föstudaginn 5. júní. Fundirnir voru vel sóttir og gafst sjóðfélögum tækifæri til að kynna sér fyrirhugaða sameiningu, spyrja spurninga og ræða málið. Sjóðfélagar gátu einnig sótt fundinn á Hellu á Teams.
Á fundinum á Hellu fór Vala Valtýsdóttir, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs bænda, yfir ástæður og aðdraganda þess að farið var í viðræður um sameiningu sjóðanna. Hún fjallaði um stöðu sjóðsins og tækifæri sem felast í sameiningu, auk þess sem hún fór yfir þann ábata sem sameiningin er talin geta haft fyrir sjóðfélaga, meðal annars með bættri þjónustu, aukinni stærðarhagkvæmni og styrkari rekstrargrunni. Á fundinum á Akureyri fór Einar Ófeigur Björnsson, stjórnarmaður yfir framangreint.
Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, kynnti framkvæmd sameiningarinnar og útskýrði hvernig fyrirhugað er að henni verði háttað. Hann fór jafnframt yfir helstu staðreyndir um Frjálsa, starfsemi hans ásamt þjónustu og ráðgjöf sem stendur sjóðfélögum til boða.
Stjórnir beggja sjóða skrifuðu undir samrunasamning 19. maí sl. og telja sameininguna geta orðið til hagsbóta fyrir sjóðina og sjóðfélaga þeirra. Með sameiningunni er stefnt að því að efla rekstrargrundvöll sjóðanna, bæta þjónustu og styrkja eigna- og áhættustýringu til framtíðar.
Sameiningin verður lögð fram til staðfestingar á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda þann 19. júní kl. 14 að Borgartúni 19. Gagnlegar upplýsingar um fyrirhugaða sameiningu má finna hér.

Kynningarfundur á Hellu. Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa.

Kynningarfundur á Hellu. Vala Valtýsdóttir, formaður stjórnar LSB.

Kynningarfundur á Akureyri. Frá vinstri: Einar Ófeigur Björnsson, stjórnarmaður LSB, Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa, Jóhann Már Sigurbjörnsson, varaformaður stjórnar LSB og Þröstur Sigurðsson, framkvæmdastjóri LSB.