Frétt
Nú er hægt að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán
15. október 2026Opnað hefur verið á ný fyrir umsóknir um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar samkvæmt almenna úrræðinu. Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán tóku gildi 1. október 2026. Lögin tryggja varanlega heimild til að nýta viðbótarlífeyrissparnað skattfrjálst til að greiða niður höfuðstól húsnæðislána. Heimildin gildir í allt að 120 mánuði samtals, en nýting hennar þarf ekki að vera samfelld.
Breyting á umsóknarferli
Frá og með 1. október 2026 er sótt um úrræðið á þjónustuvef Skattsins en ekki á leidretting.is eins og áður.
Hverjir geta nýtt úrræðið?
Til að geta nýtt úrræðið þarft þú að:
- eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu
- vera með lögheimili í húsnæðinu
- vera með lán sem er tryggt með veði í húsnæðinu
Sækja þarf um fyrir 1. desember til að nýta iðgjöld frá árinu 2026
Almenna reglan er að umsókn gildir um iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst.
Undantekning frá þeirri reglu gildir út árið 2026. Umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 gilda frá 1. janúar 2026, þannig að unnt er að nýta iðgjöld sem greidd hafa verið frá áramótum.
Hámarksfjárhæð
Fyrir árið 2026 er heimilt að ráðstafa allt að 500.000 kr. á einstakling skattfrjálst inn á húsnæðislán.
Hámarksfjárhæðin skiptist í eigið framlag og framlag launagreiðanda:
- Eigið framlag: Allt að 4% af launum, að hámarki 333.000 krónur á ári.
- Framlag launagreiðanda: Allt að 2% af launum, að hámarki 167.000 krónur á ári.
Heimildin gildir í allt að 120 mánuði samtals. Athugið að heimildin þarf ekki að nýtast samfellt og því getur liðið lengri tími en 10 ár frá fyrstu nýtingu þar til hámarkstímabili úrræðisins er náð.
Fjárhæðirnar taka breytingum í upphafi hvers árs í samræmi við vísitölu neysluverðs.
Við kaup á fyrstu íbúð
Áfram er í boði sambærilegt úrræði fyrir kaup á fyrstu íbúð. Um það gilda aðrar reglur og skilyrði en um almenna úrræðið sem fjallað er um hér.
Sækja um
Sótt er um á þjónustuvef Skattsins: Séreignarsparnaður – ráðstöfun inn á húsnæðislán
Athugið að hjón og sambúðarfólk þurfa hvort um sig að sækja um.
Þeir sem áður nýttu almenna úrræðið í gegnum leidretting.is þurfa að sækja um að nýju ef þeir vilja halda áfram að nýta úrræðið. Fyrri nýting telst með í 120 mánaða hámarkstímabili úrræðisins, en heimilt er að nýta þann ráðstöfunartíma sem eftir er.
Frekari upplýsingar
- Skattfrjáls ráðstöfun – breytingar 1. október
- Skattfrjálsu úrræðin eru tvö
- Spurt og svarað um ráðstöfun inn á húsnæðislán