Sameining Lífeyrissjóðs bænda og Frjálsa

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað samning um sameiningu lífeyrissjóðanna.

Sameiningin verður lögð fram til staðfestingar á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda sem haldinn verður 19. júní og er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna.

Ábati sjóðfélaga LSB af sameiningu við Frjálsa

  • Stærðarhagkvæmni
    • Lækkandi kostnaður á hvern sjóðfélaga: með stærri sjóði dreifist kostnaður á fleiri einstaklinga, sem leiðir til lægri rekstrarkostnaðar á hvern sjóðfélaga.
    • Betri viðnámsþróttur gegn utanaðkomandi áföllum: stærri sjóður hefur meiri fjárhagslegan sveigjanleika og getur betur brugðist við óvæntum breytingum.
  • Öflugri lífeyrissjóður
    • Sterkari fjárfestingargeta: sameining sjóðanna getur leitt til betri dreifingar á fjárfestingum og hærri ávöxtunar til lengri tíma.
  • Traust og öryggi
    • Langtímaöryggi fyrir sjóðfélaga: sameining styrkir stöðu sjóðsins til framtíðar.
  • Aukinn sveigjanleiki við útgreiðslur og val á fjárfestingarleiðum fyrir séreign
    • Framtíðariðgjöldum sjóðfélaga verður ráðstafað í Frjálsu leiðina svo hluti af skylduiðgjaldi í lífeyrissjóð fer í frjálsa séreign séreign og hluti í samtryggingu. Séreignin er laus til útgreiðslu eftir hentugleika frá 60 ára aldri. Viðmiðunaraldur eftirlauna úr samtryggingu er 70 ára en flýta má töku lífeyris til 60 ára eða fresta til allt að 80 ára.
    • Sjóðfélagar geta valið fjárfestingarleið fyrir séreign sína. Frjálsi býður upp á fjórar misáhættumiklar fjárfestingarleiðir fyrir séreign sem sjóðfélagar geta valið um. Flestir velja Ævilínu en þá færist inneign sjálfkrafa á milli fjárfestingarleiða 1-3. Sjóðfélagar geta þó alltaf breytt um fjárfestingarleið.

Tímalína sameiningar

Hvað hefur Frjálsi upp á að bjóða?

Frjálsi er fullgildur lífeyrissjóður stofnaður árið 1978 af Fjárfestingarfélagi Íslands. Sjóðurinn er stærsti séreignarsjóður landsins og meirihluti eigna er séreign sjóðfélaga. Frjálsi tekur einnig við viðbótarsparnaði sem rennur óskipt í séreign sjóðfélaga. Frjálsi hefur ávallt verið opinn öllum sem í hann vilja greiða og án skylduaðildar.

Frjálsi hefur frá upphafi útvistað öllum rekstri og eignastýringu til fjármálafyrirtækis. Arion banki og forverar hafa annast þessa þjónustu frá árinu 2001.

Núverandi rekstrarsamningur við Arion banka tryggir hagkvæmni í rekstri og felur í sér lækkandi kostnað í takt við vöxt sjóðsins. Með þessu móti nýtur Frjálsi sérfræðikunnáttu og stöðugleika í rekstri, samhliða vaxandi ávinningi fyrir sjóðfélaga.

 

Skyldusparnaðarleiðir Frjálsa

Frjálsi býður upp á tvær skyldusparnaðarleiðir sem sjóðfélagar geta valið um. Frjálsa leiðin býður upp á mestan sveigjanleika þegar kemur að útgreiðslum en Erfanlega leiðin býður upp á mestan erfanleika.

Sjóðfélagar fara í Frjálsu leiðina en þú getur breytt um skyldusparnaðarleið fyrir framtíðariðgjöld hvenær sem er á Mínum síðum Frjálsa.

Frjálsa leiðin

Fyrir þá sem vilja hámarka sveigjanleika.

44%

Frjáls séreign er laus til útborgunar eftir hentugleikum frá 60 ára aldri og erfist að fullu.

56%

Samtrygging tryggir þér ellilífeyri allt frá 60 ára aldri til æviloka, ásamt rétti til örorku-, maka- og barnalífeyris.

Erfanlega leiðin

Fyrir þá sem vilja hámarka erfanleika.

34%

Frjáls séreign er laus til útborgunar eftir hentugleikum frá 60 ára aldri og erfist að fullu.

42%

Bundin séreign er laus til mánaðarlegrar útborgunar allt frá 60 ára aldri til að lágmarki 82 ára aldurs og erfist að fullu.

24%

Samtrygging tryggir þér ellilífeyri allt frá 82 ára aldri til æviloka, ásamt rétti til örorku-, maka- og barnalífeyris.

Mismunandi fjárfestingarleiðir fyrir séreign

Frjálsi býður upp á fjórar misáhættusamar fjárfestingarleiðir fyrir séreign sem sjóðfélagar geta valið um. Flestir sjóðfélagar velja Ævilínu, en þá færist inneignin sjálfkrafa á milli fjárfestingarleiða 1-3.

Framtíðariðgjöldum sjóðfélaga LSB verður ráðstafað í Frjálsu leiðina og sjóðfélagar fara í Ævilínu. Sjóðfélagar geta þó alltaf flutt séreign á milli leiða og breytt í hvaða leið framtíðariðgjöldum er ráðstafað.

 

 

 

Sameining í tveimur skrefum

Sameiningin verður framkvæmd í tveimur skrefum.

Ástæða þess er að nú er unnið að hugmyndum um breytingar á lífeyrissjóðakerfinu. Vinnan er leidd af aðilum vinnumarkaðarins, fulltrúum ASÍ og SA, í samráði við fjármálaráðuneytið. Hugmyndirnar fela í sér að örorkutryggingavernd lífeyrissjóða verði færð í sameiginlegan örorkusjóð. Ef að þeim breytingum verður mun tryggingafræðileg staða lífeyrissjóða batna almennt þar sem að örorkuskuldbinding færist frá þeim en lægra hlutfall eigna sem hlutfall af skuldbindingunni. Staðan batnar mismikið á milli sjóða eftir því hvað örorkuskuldbinding er hátt hlutfall af heildarskuldbindingum. Því telja stjórnir sjóðanna skynsamlegast að halda tryggingadeildum Frjálsa og LSB aðskildum þangað til ákvörðun hefur verið tekin um stofnun örorkusjóðs og möguleg aðlögun réttinda verið framkvæmd.

  • Fyrra skref sameiningar:
     
    Í fyrra skrefi sameiningar munu áunnin réttindi sjóðfélaga LSB færast í sérstaka tryggingadeild hjá Frjálsa (Tryggingadeild LSB), en framtíðariðgjöld sjóðfélaga LSB greiðast í Frjálsu leiðina hjá Frjálsa. Tryggingadeildum LSB og Frjálsa verður haldið aðskildum hjá Frjálsa, hvað varðar eignir og skuldbindingar. Einnig verða gerðar tryggingafræðilegar athuganir fyrir hvora deild fyrir sig.
     
    Frjálsi mun taka við iðgjöldum, greiða út lífeyri og sjá um almenna þjónustu til sjóðfélaga frá fyrra skrefi sameiningar. Iðgjöld sem berast LSB fram að fyrra skrefi sameiningar verða færð sem iðgjöld í tryggingadeild LSB. Iðgjöld sem berast eftir fyrra skref sameiningar verður ráðstafað í tryggingadeild og séreignadeild hjá Frjálsu leiðinni í Frjálsa. Iðgjöldum í séreign verður ráðstafað í Ævilínu. Frá og með sameiningardegi geta sjóðfélagar sem færast til Frjálsa frá LSB breytt ráðstöfun framtíðariðgjalda, kjósi þeir svo.
     
  • Seinna skref sameiningar:
     
    Í seinna skrefi sameiningarinnar verða tryggingadeildir LSB og Frjálsa sameinaðar.
     
    Þá færast allar eignir, réttindi og skuldbindingar úr tryggingadeild LSB til tryggingadeildar Frjálsa. Sameiningin í því skrefi mun miðast við næstu áramót eftir stofnun mögulegs örorkusjóðs. Ef fyrir liggur að ekki eigi að stofna örorkusjóð eða ef ekki hefur verið tekin ákvörðun um stofnun hans fyrir 30. júní 2028, mun vinna hefjast við sameiningu tryggingadeildanna svo hægt sé að sameina þær m.v. 31. desember 2028.
     
    Ef ákveðið verður að stofna örorkusjóð verða réttindi sjóðfélaga aðlöguð, ef við á, í hvorri deild fyrir sig fyrir sameiningu tryggingadeildanna.

 

Tryggingafræðileg staða

Tryggingafræðileg athugun sjóðanna liggur fyrir m.v. 31.12.2025. Réttindi sjóðfélaga verða aðlöguð samkvæmt mati stjórnar hvors lífeyrissjóðs og almennum reglum fyrir fyrra skref sameiningar.

Fyrir seinna skref sameiningar mun tryggingarstærðfræðingur meta lögum samkvæmt hvort þurfi að jafna tryggingarfræðilega stöðu tryggingadeildanna með breytingu á áunnum réttindum.

 

 

 

 

 

 

Jöfn réttindaávinnsla

Fyrir fyrra skref sameiningarinnar mun jöfn réttindaávinnsla sjóðfélaga LSB falla niður og þeir sjóðfélagar sem eiga rétt til hennar fá reiknuð uppbótarréttindi. Nánar um útfærslu á reiknuðum uppbótarréttindum má lesa í tillögum að breytingum á samþykktum sjóðsins hér.

Samanburður samþykkta

 

Arion appið

Sjóðfélagar Frjálsa geta fylgst með lífeyrismálum sínum í Arion appinu og framkvæmt helstu aðgerðir á einfaldan og fljótlegan hátt. Arion appið er opið öllum og sjóðfélagar þurfa ekki að vera í bankaviðskiptum við Arion til þess að geta nýtt sér einstaka yfirsýn og aðgerðir tengdar lífeyrismálum í appinu.

Nánar um aðgerðir í appinu

Frjálsi er einnig hluti af Arion fríðindum, sem þýðir að sjóðfélagar sem eru með viðbótarlífeyrissparnað í Frjálsa og eru einnig viðskiptavinir Arion, geta notið meiri fríðinda en áður hjá bankanum.

Spurt og svarað