Frétt
Frjálsi innlán: Ný fjárfestingarleið fyrir uppsafnaða séreign
29. september 2026Frjálsi lífeyrissjóðurinn býður nú upp á nýja fjárfestingarleið, Frjálsa innlán, sem fjárfestir í verðtryggðum innlánum. Leiðin er eingöngu í boði fyrir þá sem eiga viðbótarsparnað, frjálsa séreign úr skyldusparnaði og erfðaséreign og vilja flytja séreign sína í heild eða að hluta í Frjálsa innlán.
Leiðin hentar sjóðfélögum sem vilja:
- lágmarka sveiflur í ávöxtun séreignarsparnaðar síns. Vextir leiðarinnar breytast með raunvaxtastigi í landinu en breytingar á markaðsvöxtum hafa ekki áhrif á höfuðstól innlána og því eru gengissveiflur mjög litlar
- ávaxta séreign sína í innlánum fjármálastofnana
- nýta sér kosti verðtryggingar
Leiðin hentar einkum þeim sem eru að nálgast eftirlaunaaldur eða eru farnir að nýta séreign sína til útgreiðslu svo og þeim sem vilja lágmarka sveiflur í ávöxtun yfir styttri tíma.
Fyrir hvaða séreign er leiðin?
Frjálsi innlán eru í boði fyrir:
- viðbótarsparnað
- frjálsa séreign úr skyldusparnaði
- erfðaséreign
Leiðin er ekki í boði fyrir:
- bundna séreign
- tilgreinda séreign
- framtíðariðgjöld
Flutningur í Frjálsa innlán
Sjóðfélagar geta flutt alla uppsafnaða séreign sína eða ákveðinn hluta hennar úr öðrum fjárfestingarleiðum sjóðsins í Frjálsa innlán. Þannig er hægt að flytja aðeins hluta sparnaðarins í leiðina en halda eftir þeirri inneign sem eftir stendur í öðrum fjárfestingarleiðum.
Einnig er hægt að flytja uppsafnaða séreign frá öðrum vörsluaðilum séreignarsparnaðar í Frjálsa innlán.
Umsóknir
Umsóknareyðublöðin „Beiðni um flutning á uppsafnaðri séreign úr annarri fjárfestingarleið Frjálsa í Frjálsa innlán“ og „Beiðni um flutning á uppsafnaðri séreign frá öðrum vörsluaðila í Frjálsa innlán“ er að finna á umsóknarsíðu Frjálsa undir kaflanum Frjálsi innlán.
Val á fjárfestingaleið
Við val á fjárfestingarleið er mikilvægt að taka mið af sparnaðarmarkmiðum, tímalengd sparnaðar og viðhorfi til áhættu.
Ekki er hægt að segja fyrir um hvaða fjárfestingarleið muni skila hæstu ávöxtun í framtíðinni. Almennt er þó talið að fjárfestingarleiðir sem innihalda hlutabréf skili hærri ávöxtun til lengri tíma en innlán og skuldabréf, en jafnframt fylgja þeim að jafnaði meiri sveiflur í ávöxtun. Verðtryggð innlán bera að jafnaði lægri en stöðugri langtímaávöxtun, þar sem verðmæti þeirra sveiflast ekki í takt við markaði, heldur þróast í samræmi við verðbætur og gildandi vexti hverju sinni.
Sjóðfélagar geta flutt hluta af séreignarsparnaði sínum í Frjálsa innlán kjósi þeir að eiga séreignarsparnað í Frjálsa innlánum og í hlutabréfum og/eða skuldabréfum.
Nánari upplýsingar um fjárfestingarleiðina er að finna í
spurt og svarað um Frjálsa innlán.