Spurt og svarað vegna Frjálsa innlána
Eignasamsetning Frjálsa innlána
Frjálsi innlán er fimmta og nýjasta fjárfestingarleiðin sem Frjálsi býður sjóðfélögum upp á til að ávaxta séreign, stofnuð í ágúst 2026.
Fyrst um sinn er fyrirhugað að fjárfesta í innlánum sem verða alltaf laus til útgreiðslu og flutnings skv. beiðni sjóðfélaga, ásamt vöxtum og verðbótum.
Síðar meir er stefnt að því að fjárfesta einnig í innlánum sem bera hærri vexti en eru á móti bundin til allt að 36 mánaða.
Vegna binditímans er lögð áhersla á að leiðin verði búin að ná ákveðinni stærð áður en þeim verður bætt við svo hægt sé að sinna útgreiðslu- og flutningsbeiðnum sjóðfélaga.
Fyrir hverja hentar leiðin Frjálsi innlán?
Leiðin hentar sjóðfélögum sem vilja:
- Lágmarka sveiflur í ávöxtun séreignarsparnaðar síns. Gildandi vextir leiðarinnar á hverjum tíma breytast með raunvaxtastigi í landinu en breytingar á markaðsvöxtum hafa ekki áhrif á höfuðstól innlána og því eru gengissveiflur mjög litlar.
- Ávaxta séreign sína í innlánum fjármálastofnana.
- Nýta sér kosti verðtryggingar.
Leiðin hentar einkum þeim sem eru að nálgast eftirlaunaaldur eða eru farnir að nýta séreign sína til útgreiðslu svo og þeim sem vilja lágmarka sveiflur í ávöxtun yfir styttri tíma.
Hvað má flytja í Frjálsa innlán?
Frjálsi innlán er eingöngu í boði fyrir uppsafnaða inneign sjóðfélaga í viðbótarsparnaði, frjálsri séreign úr skyldu og erfðaséreign.
- Frjálsi innlán er ekki í boði fyrir framtíðariðgjöld.
- Frjálsi innlán er ekki í boði fyrir tilgreinda séreign og bundna séreign.
- Frjálsi innlán er ekki hluti af Ævilínu.
Ef ekkert er tiltekið á flutningsbeiðni þá er flutt úr áhættumestu fjárfestingarleiðinni fyrst svo næst áhættumestu o.s.frv. Einnig er flutt fyrst úr frjálsri séreign úr skyldu, svo úr viðbótarsparnaði og svo úr erfðaséreign. Heimilt er að óska eftir öðru.
Hvers vegna er Frjálsi innlán ekki í boði fyrir allar séreignartegundir Frjálsa?
Um bundna séreign og tilgreinda séreign gilda fjárfestingartakmarkanir lágmarkstryggingaverndar sem eru strangari en reglur annarra séreignartegunda.
M.a. takmarkast hlutfall innlána hverrar fjárfestingarleiðar við 25% hjá einum viðskiptabanka.
Til að ná markmiði um hæstu ávöxtun að teknu tilliti til áhættu hefur verið ákveðið a.m.k. fyrst um sinn að takmarka fjölda viðskiptabanka sem ávaxta innlánin.
Þess vegna er Frjálsi innlán eingöngu í boði fyrir viðbótarsparnað, frjálsa séreign úr skyldu og erfðaséreign en um þær gilda ekki fyrrgreindar fjárfestingartakmarkanir.
Hvernig sæki ég um flutning uppsafnaðrar inneignar í Frjálsa innlán?
Flutningsbeiðnir vegna Frjálsa innlána er að finna á frjalsi.is/umsoknir.
Hvernig fylgist ég með stöðu minni í Frjálsa innlánum?
Staða Frjálsa innlána mun birtast í appi, á Mínum síðum Frjálsa og í netbanka Arion banka þegar flutningur hefur farið fram.
Hvernig sæki ég um útgreiðslu úr Frjálsa innlánum?
Þú sækir um útgreiðslu úr Frjálsa innlánum með hefðbundnum hætti m.a. í Arion appi og á Mínum síðum Frjálsa.
Hvernig flyt ég Frjálsa innlán í aðra fjárfestingarleið Frjálsa?
Þú flytur úr Frjálsa innlánum í aðra leið Frjálsa með hefðbundnum hætti með aðgerðinni: Breyting á fjárfestingarleið - en vakin er athygli á því að virkni slíkra beiðna getur verið mismunandi eftir því hvort þær eru gerðar í Arion appinu, á Mínum síðum eða á eyðublaði.
Ef þú breytir um leið í Arion appinu: gildir breytingin alltaf bæði um framtíðariðgjöld og uppsafnaða inneign.
- Eigir þú inneign í Frjálsa innlánum þá flyst hún sjálfkrafa með án þess að þú biðjir eitthvað sérstaklega um það.
- Þú getur því ekki ávaxtað inneign þína áfram í Frjálsa innlánum ef þú gerir breytingu á fjárfestingarleið í appinu.
Ef þú breytir um leið á Mínum síðum: þá getur þú valið hvort breytingin gildi eingöngu um framtíðariðgjöld/uppsafnaða inneign & framtíðariðgjöld.
- Eigir þú inneign í Frjálsa innlánum þá flyst hún EKKI með ef þú velur að breytingin gildi eingöngu um framtíðariðgjöld.
- Eigir þú inneign í Frjálsa innlánum þá flyst hún með ef þú velur að breytingin gildi (líka) um uppsafnaða inneign.
- Þú getur því ekki ávaxtað inneign þína áfram í Frjálsa innlánum ef þú velur á Mínum síðum að breytingin gildi um uppsafnaða inneign.
Óskir þú eftir að flytja hluta inneignar í aðra leið eða að hluti fjárhæðar verði áfram ávöxtuð í Frjálsa innlánum skaltu hafa samband í síma 444 6090.
Hver verður ávöxtun Frjálsa innlána?
Ávöxtun leiðarinnar fer eftir vöxtum innlánsreikninga og verðlagsþróun (verðbólgu/verðhjöðnun) hverju sinni.
Gildandi raunvextir Frjálsra innlána eru 1,9%. Við vextina bætast verðbætur en frá vöxtunum dregst frá rekstrarkostnaður sem gera má ráð fyrir að verði um 0,18% á árinu 2026. Rekstrarkostnaðarhlutfallið er áætlun sem byggir á gildandi umsýsluþóknun til rekstraraðila sjóðsins og raunkostnaði á árinu 2025.
Raunvextir Frjálsra innlána geta tekið breytingum á hverjum tíma. Rekstrarkostnaðarhlutfall er áætlað og eru upplýsingarnar uppfærðar árlega þegar ársreikningur sjóðsins liggur fyrir. Upplýsingar á þessari síðu eru birtar með fyrirvara um breytingar. Komi upp misræmi milli upplýsinga á síðunni og þeirra vaxtakjara sem gilda í raun hverju sinni skulu þau síðarnefndu gilda. Upplýsingarnar teljast ekki ráðgjöf eða bindandi tilboð.
Kostnaður Frjálsa innlána
Flutningskostnaður
- Flytji sjóðfélagi Frjálsa uppsafnaða inneign úr annarri leið yfir í Frjálsa innlán þá kostar það ekkert.
- Flytji sjóðfélagi annars sjóðs uppsafnaða inneign í Frjálsa innlán þá tekur hinn vörsluaðilinn yfirleitt einhvern kostnað, en Arion banki endurgreiðir sjóðfélaga þann kostnað inn í Frjálsa að flutningi loknum.
Kostnaður
- Stærsti kostnaðarliður Frjálsra innlána er sú umsýsluþóknun sem leiðin greiðir til Arion banka fyrir rekstur leiðarinnar. Fyrir árið 2026 er umsýsluþóknunin 0,14% og við bætist annar rekstrarkostnaður leiðarinnar. Sjá rekstrarkostnað Frjálsa hér og upplýsingar um kostnað í lykilupplýsingaskjali hér.
- Ávöxtun er birt að frádregnum kostnaði, líkt og hjá öðrum fjárfestingarleiðum/sjóðum.
Vörsluþóknun
- Frjálsi innlán greiðir hvorki vörsluþóknun né óbein fjárfestingargjöld í gegnum sjóði. Því má gera ráð fyrir að kostnaðarhlutfall leiðarinnar verði lægra en annarra fjárfestingarleiða Frjálsa þar sem þær greiða vörsluþóknun og fjárfestingargjöld.