Frétt

Tapinu verður ekki velt frá ríkinu yfir á sjóðfélaga lífeyrissjóða

Tapinu verður ekki velt frá ríkinu yfir á sjóðfélaga lífeyrissjóða

Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, skrifaði grein um málefni ÍL-sjóðs ásamt Hjörleifi Arnari Waagfjörð, forstöðumanni eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion banka og Snædísi Ögn Flosadóttur, framkvæmdastjóra EFÍA og LSBÍ og rekstrarstjóra Lífeyrisauka, sem birtist í Morgunblaðinu sl. laugardag.

Þar reifa þau atburðarásina frá því að fjármála- og efnahagsráðherra tilkynnti í október 2022 mögulegar leiðir til að leysa stöðu ÍL-sjóðs. Stærstu eigendur skuldabréfa útgefnum af sjóðnum eru lífeyrissjóðir. Lífeyrissjóðirnir hafa því í sameiningu aflað sér sterkra lagalegra álita sem gerð hafa verið opinber og samkvæmt þeim ber ríkið ótakmarkaða ábyrgð gagnvart öllum skuldbindingum ÍL-sjóðs.

Í lok mars birtist áformaskjal fjármála- og efnahagsráðuneytisins um lagasetningu um slit og uppgjör ÍL-sjóðs. Í greininni gagnrýna þau þessi áform sem fela í sér að tapi ÍL-sjóðs verði velt yfir á sjóðfélaga lífeyrissjóða.

Greinina má finna hér fyrir neðan.

Tapinu verður ekki velt frá ríkinu yfir á sjóðfélaga lífeyrissjóða