Frétt
Lífeyrissjóður bænda og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir
04. nóvember 2026Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins og staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis á samþykktabreytingum sjóðanna hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB hafa verið fluttar til Frjálsa.
Sjóðfélagar þurfa ekkert að aðhafast vegna sameiningarinnar en nánari upplýsingar um sameininguna og þjónustu Frjálsa má finna á upplýsingasíðu um sameininguna, hér.
Frjálsi býður nýja sjóðfélaga innilega velkomna í hópinn.