Frétt
Áfram hægt að nýta séreignarsparnað til að greiða inn á húsnæðislán
03. júlí 2026
Alþingi hefur samþykkt ný lög sem kveða á um að áfram verði heimilt að ráðstafa séreignarsparnaði skattfrjálst inn á höfuðstól húsnæðislána. Með lögunum verður úrræðið varanlegt og sjóðfélagar geta áfram nýtt séreignarsparnað sinn til að greiða niður húsnæðislán.
Þá geta einstaklingar nýtt úrræðið í allt að tíu ár, að uppfylltum skilyrðum laganna og árlegar hámarksfjárhæðir verða framvegis verðtryggðar í samræmi við vísitölu neysluverðs.
Unnið er að gerð nýs umsóknarferlis hjá Skattinum og er stefnt að því að það verði tilbúið þegar lögin taka gildi 1. október 2026. Þá geta sjóðfélagar sótt um ráðstöfun séreignarsparnaðar í gegnum þjónustuvef Skattsins. Nánari upplýsingar um framkvæmd úrræðisins verða birtar þegar þær liggja fyrir.
Sjá lög hér.
Fyrsta íbúð
Þau sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð geta áfram sótt um útborgun uppsafnaðs séreignarsparnaðar og ráðstöfun hans í gegnum þjónustuvef Skattsins samkvæmt reglum úrræðisins „Fyrsta íbúð“.