Frétt
Niðurstöður ársfundar Frjálsa
04. júní 2026
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn í höfuðstöðvum Arion banka miðvikudaginn 3. júní. Sjóðfélagar gátu einnig fylgst með fundinum í gegnum beint streymi og tekið þátt í rafrænum atkvæðagreiðslum um tillögur fundarins líkt og sjóðfélagar á fundarstað.
Á fundinum var skýrsla stjórnar kynnt ásamt ársreikningi sjóðsins, niðurstöðum tryggingafræðilegrar athugunar og fjárfestingarstefnu. Jafnframt voru tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins lagðar fram og samþykktar ásamt því að tillögur um stjórnarlaun og endurskoðanda voru samþykktar.
Kosning í aðalstjórn og varastjórn fór eingöngu fram með rafrænum hætti. Hún stóð yfir í viku og lauk kl. 17:00 á ársfundardegi.
Kosning stjórnarmanna
Fimm framboð bárust í tvö laus sæti í aðalstjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Frambjóðendur sem hlutu kosningu í aðalstjórn til næstu þriggja ára:
- Hólmfríður Einarsdóttir
- Björn Ingi Victorsson
Tvö framboð bárust í eitt laust sæti í varastjórn. Vala Valtýsdóttir var kjörin til næstu þriggja ára.