Frétt

Innlendar sérhæfðar fjarfestingar

Innlendar sérhæfðar fjarfestingar

Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á gagnsæi og að sjóðfélagar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi sjóðsins. Á vefsíðu Frjálsa má finna lykilupplýsingar með helstu upplýsingum um rekstur og fjárfestingar. Í þessari umfjöllun verður farið yfir hvernig sjóðurinn hefur nálgast uppbyggingu á innlendum sérhæfðum fjárfestingum ásamt því að stiklað verður á stóru um einstakar fjárfestingar.

Sem langtímafjárfestir hefur Frjálsi bæði svigrúm og möguleika til að byggja upp vel dreift eignasafn til lengri tíma. Í því samhengi gegna innlendar sérhæfðar fjárfestingar mikilvægu hlutverki í heildarsamsetningu eignasafnsins, oft byggir ávöxtun þeirra á öðrum drifkröftum en til að mynda hefðbundnir skráðir fjármálagerningar og tengjast oft síður skammtímasveiflum á fjármálamörkuðum.

Með sérhæfðum fjárfestingum er yfirleitt átt við fjárfestingar sem eru frábrugðnar hefðbundnum hlutabréfa - og skuldabréfafjárfestingum að því leyti að þær eru oft óskráðar, með lengri binditíma og takmarkaðan seljanleika til skemmri tíma. Aðgengi fagfjárfesta, svo sem lífeyrissjóða, að þessum eignaflokki hefur bæði verið í formi beinnar fjárfestingar eða óbeinnar fjárfestingar í gegnum ýmiss konar form af sérhæfðum sjóðum.

Lesa grein