Frétt
Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður bænda sameinast
20. maí 2026Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað samning um sameiningu lífeyrissjóðanna.
Sameiningin verður lögð fram til staðfestingar á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda sem haldinn verður í júní og er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna.
Viðræður um sameiningu sjóðanna hófust á haustmánuðum 2025 og eftir gerð áreiðanleikakönnunar og ítarlegt mat á fýsileika sameiningar telja stjórnir beggja lífeyrissjóða að sameining efli rekstrargrundvöll og sé til hagsbóta fyrir sjóðfélaga beggja sjóða.
Markmið sameiningarinnar er að nýta stærðarhagkvæmni til að lækka rekstrarkostnað, efla þjónustu og upplýsingagjöf til sjóðfélaga og launagreiðenda, minnka rekstraráhættu og um leið styrkja eigna- og áhættustýringu sjóðanna. Heildareignir sameinaðs sjóðs eru um 672 milljarðar kr. miðað við stöðu eigna 30. apríl sl., þar af eignir Frjálsa um 626 milljarðar kr. og eignir Lífeyrissjóðs bænda um 46 milljarðar kr.
Með sameiningunni mun Frjálsi taka yfir öll réttindi og skyldur gagnvart sjóðfélögum Lífeyrissjóðs bænda en fyrst um sinn verður haldið utan um áunnin réttindi sjóðfélaga Lífeyrissjóðs bænda í lokaðri tryggingadeild.
Sameiningin verður kynnt fyrir sjóðfélögum Lífeyrissjóðs bænda þann 4. júní kl. 20 á Hótel Stracta á Hellu og þann 5. júní kl. 20 í útibúi Arion banka á Akureyri.
Ásdís Eva, stjórnarformaður Frjálsa:
„Ég er þakklát fyrir það traust sem stjórn Lífeyrissjóðs bænda hefur sýnt Frjálsa og fagna því að stjórnir hafi nú samþykkt sameiningu sjóðanna. Með sameiningunni verða sjóðfélagar Lífeyrissjóðs bænda hluti af öflugum sjóðfélagahópi Frjálsa og mun sameinaður sjóður þjónusta rúmlega 85 þúsund sjóðfélaga. Við munum áfram leggja ríka áherslu á góða og persónulega þjónustu. Sameiningin leggur traustan grunn að öflugri framtíð með hagsmuni allra sjóðfélaga að leiðarljósi.“
Vala Valtýsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs bænda:
„Ég er ánægð með að sameiningarviðræðum stjórna sé lokið með þeirri niðurstöðu að sjóðirnir sameinist. Það eru ríkir hagsmunir fyrir Lífeyrissjóð bænda að sameinast stórum sjóði eins og Frjálsa sem er jafnframt með öflugan rekstrar- og eignastýringaraðila, Arion banka, sem veitir sjóðfélögum góða þjónustu. Við í stjórn Lífeyrissjóðs bænda bindum vonir til þess að sameiningin leggist vel í sjóðfélaga og að þeir staðfesti hana á ársfundi í júní. Stjórn telur jafnframt að með sameiningu sjóðanna verði lagður traustur grunnur að áframhaldandi uppbyggingu öflugs lífeyrissjóðs.“

Frá undirritun samningsins.
Efri röð frá vinstri: Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa og Þröstur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda.
Neðri röð frá vinstri: Ásdís Eva Hannesdóttir, stjórnarformaður Frjálsa og Vala Valtýsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs bænda.
Ljósmyndari: Silla Páls