Frétt
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands og Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafa verið sameinaðir
30. apríl 2026Nú hefur dregið til tíðinda varðandi sameiningu Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Í kjölfar samþykkis Samkeppniseftirlitsins hefur sameiningin nú verið framkvæmd með þeim hætti að eignir og skuldbindingar LTFÍ hafa verið fluttar til Frjálsa. Sjóðfélagar þurfa ekkert að aðhafast vegna sameiningarinnar en nánari upplýsingar um sameininguna og þjónustu Frjálsa er að finna hér.
Frjálsi býður nýja sjóðfélaga innilega velkomna í hópinn .