Frétt

Ársfundur 2025

Ársfundur 2025

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 3. júní 2025 kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.

Allir sjóðfélagar eru velkomnir á fundinn en einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi. Kosning til stjórnar og atkvæðagreiðslur um tillögur á ársfundinum fara eingöngu fram með rafrænum hætti.

Kosning til stjórnar hefst kl. 17:00 þriðjudaginn 27. maí og stendur yfir til kl. 17:00 á ársfundardegi þriðjudaginn 3. júní.

Aðrar atkvæðagreiðslur fara fram á ársfundinum sjálfum og geta sjóðfélagar sem fylgjast með í gegnum vefstreymi tekið þátt í atkvæðagreiðslum sem fara fram á ársfundinum.

Nánari upplýsingar um fundinn og skráning á hann fer fram hér.