Frétt

Breytingar á vöxtum sjóðfélagalána

Breytingar á vöxtum sjóðfélagalána

Eftirfarandi breytingar verða á föstum vöxtum sjóðfélagalána Frjálsa sem taka gildi miðvikudaginn 4. október nk.

  • Vextir óverðtryggðra lána Frjálsa sem eru fastir til þriggja ára í senn hækka úr 9,37% í 9,97%
  • Vextir verðtryggðra lána Frjálsa sem eru fastir út lánstímann hækka úr 3,90% í 4,24%

Eftirfarandi breyting verður á breytilegum verðtryggðum vöxtum Frjálsa sem taka gildi 15. nóvember nk.

  • Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 3,05% í 4,07%

Nánari upplýsingar um lán sjóðsins er að finna hér.