Frétt

Breyting á vöxtum verðtryggðra lána

Breyting á vöxtum verðtryggðra lána

Fastir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 3,5% í 3,7% og tekur vaxtabreytingin gildi föstudaginn 14. júlí nk.

Eftir vaxtabreytinguna verða vextir lána Frjálsa eftirfarandi:

  • Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum: 2,80% (hækka í 3,05% frá 15. ágúst nk.)
  • Verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann: 3,7%
  • Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn: 9,57%

Nánari upplýsingar um lán sjóðsins er að finna hér.